Minning um smáar hendur og fætur varðveitt vandlega

Hvern langar ekki að varðveita minninguna um agnarsmáar hendur og fætur barna sinna? Stóra spurningin er hvernig? Vissulega er hægt að láta börnin stíga í málningu eða á blekpúða og síðan á blað og varðveita svo prentið svo lengi sem kostur er.

Hér er hinsvegar betri hugmynd. Láttu Japanska hönnunarmerkið Rezon gera fyrir þig stimpil sem varðveitist áratugum saman.

Stimpill af höndum og/eða fótum barna

Rezon er með netverslun þar sem þú getur sent inn fóta eða handarfar af barni og þeir útbúa glæsilegan stimpil þar sem fæðingardagur og nafn barnsins er grafið í.

Verðið er 8.800 Yen sem gera u.þ.b. 12.000 kr þegar þetta er skrifað, auk þess er sendingarkostnaður til Evrópu um 2.500 kr. þannig að alls kostar stimpillinn um 14.500 kr kominn heim til Íslands. Svo er bara spurning hvort það bætist einhver virðisauk og tollagjöld ofan á allt saman. Ekki að það skipti höfuðmáli því vel varðveitt minnig er mikils virði.

Hægt er að panta svona stimpla hér: http://www.otetetoanyo.com 

Láttu útbúa stimpil af lítilli hönd eða litlum tásum

Hvaða foreldri langar ekki í svona stimpil 


Sleikipinnar fyrir fullorðna

Hönnun er skemmtilegt fyrirbæri og einna skemmtilegast finnst mér þegar einhver kemur með "nýjan vinkil" á eitthvað sem maður sér daglega.

Hönnunarfyrirtækið Firma í Moskvu hannaði skemmtilega línu af Chupa Chups sleikipinninum fyrir fullorðna (18+) til að stækka markhóp Chupa Chups. 

Ég bara spyr... hvar get ég fengið svona á Íslandi?

Chupa Chups Fullorðinspinnar

Chupa Chups fyrir Vampírur 

Chupa Chups fyrir rokkara 

Chupa Chups fyrir.. tja... alla? 


Skórnir í Brúðkaupið

Að mínu mati eru skórnir jafn mikilvægir og kjóllinn þegar kemur að því að klæða upp brúðina fyrir stóra daginn. Fyrir þá sem vilja ganga alla leið eru varla til flottari skór í brúðkaupið heldur en þeir sem Aruna Seth hannar.

Aruna Seth er með sérstaka brúðarlínu auk þess sem hún hannar ýmsa aðra skó og stórglæsileg veski.

Hér eru myndir af nokkrum glæsilegum brúðarskóm úr línunni hennar:

Aruna Seth - Cerise Heel Ivory Satin

Aruna Seth - Farfalla Ivory Satin Peep Toe

Aruna Seth - Farfalla & Bag

Aruna Seth - Elisabeth Ivory Satin Peep Toe

Aruna Seth - Josie Ivory Satin Bridal Heel 

Hægt er að skoða heimasíðu Aruna Seth hérna: http://www.arunaseth.com

 


Stórskrýtin tíska er merkilega vinsæl

Það er alltaf jafn gaman að sjá hversu ótrúlega mikið er hægt að finna af skrýtinni tísku og ég velti því stundum fyrir mér hvort að hönnuðir heims taki meðvitaða ákvörðum um að gera stundum eitthvað ótrúlega undarlegt til þess eins að komast í fréttirnar?

Hér að neðan eru nokkrar myndir af tísku sem mér persónulega finnst skrýtin, djörf en á sama tíma skemmtileg. Ef ætlun hönnuðanna var að skapa umfjöllum þá hefur þeim hér með tekist það!

Undarlegir tískustraumar...

Skrýtin tíska 2

Skrýtin tíska 2

Skrýtin tíska 3

Skrýtin tíska 4

Skrýtin tíska 5

Skrýtin tíska 6

Skrýtin tíska 7

Skrýtin tíska 8

Skrýtin tíska 9

 Skrýtin tíska 10


10 leyndarmál sem allar stúlkur ættu að vita!

Beauty TipsÁ krepputímum eru gott að kunna góð ráð sem spara bæði tíma og peninga. Sérstaklega ef þetta eru ráð sem tryggja betra útlit og fegurri húð.

Ég rakst nýverið á mjög fína grein á vefnum College Fashion en í greininni eru talinn upp tíu góð ráð til að líta betur út án þess að það kosti mikinn tíma eða peninga.

Ég ætla að birta greinina hér án þess að þýða hana og jafnframt hvetja þig til að setja fleiri góð ráð í athugasemdair hér að neðan (ef þú átt þau til).

Hér er greinin:

10 (Affordable) Beauty Secrets Every Girl Should Know

As college girls, we’re always looking for tips and tricks that are affordable and time-saving. Between classes, extra curricular activities and our social lives, it’s hard to find the time to always primp and prep ourselves to look fabulous, and things can fall out of place from time to time, especially during a day that seems to last forever.

But with these quick and easy beauty secrets, you’re guaranteed to look beautiful and flawless all the time! Read on for all the info.

1) Bronzer and baby powder are a great way to disguise oily hair.
This trick is one of my favorites, since I am unfortunately one of those girls who loves to play with her hair, and therefore, add more oil to it than it would have on its own. If you’re a brunette, carry around a bronzer compact. If you’re a blonde, carry around a mini baby powder. They’ll temporarily hide your not-so-freshly-washed locks!

2) Vaseline is an all-around life saver.
From using it as a chapstick, to applying a sparing amount to dry skin, to using it as an eye makeup remover, Vaseline can do it all. (Once my mom and I asked a middle-aged woman how her skin was so smooth and glowy, and she responded by saying she’s been putting Vaseline on it every night since she was 13! But make sure your skin can handle it if you dare to try! Vaseline is very thick, and can cause your skin to clog and pimples to form!)

3) Visine can help clear up your eyes… and your blemishes!
Red eyes after a long night studying? Visine’s always great to have on hand… And as a bonus, applying a small amount to blemishes will reduce redness almost instantly! Talk about double duty.

4) Flyaways can be tamed by most moisturizers!
If you have any stray flyaway hairs, take a small, dime-sized amount of moisturizer, rub between your hands, and run over those stray pieces of hair! The weight of the moisturizer will hold them down, while giving your hands a quick dose of moisture!

5) Nails stained from dark polishes? Stick your fingertips in lemon halves!
Sticking your nails in lemon halves for five minutes will help brighten nails instantly. This is a trick that is used on models, since they often have to continuously get their nails done, often with dark, staining polishes.

6) Forget buying cream eyeshadow… Make your own!
By using a wet brush instead of a dry one on powdered eye shadow, you instantly create a creamier, brighter shadow to apply to your lids. This trick is so simple, yet so effective!

7) Put your perfume or fragrance on your wrists when you’ll be meeting people and shaking hands.
By putting fragrance on your wrists as well as behind your ears, it ensures that the recipient of your handshake or the lucky person who’s kissing your cheek will smell your delicious scent!

8) Run a fabric-softener sheet along your hair to get rid of the smell of a night out.
Whether you smell like a frat party, a smoky room, or a bar, this trick will get you smelling less like a night out and more like you’re ready to face a new day!

9) Want to change your hairstyle, but not ready to cut it off? Try a side part!

This dramatic part will make you the envy of every girl, and requires nothing more than a comb and a little bit of hairspray! Celebrities like Megan Fox love this easy look! Also consider trying new accessories, such as clips, bobby pins, and headbands, as well as styling your hair into buns and ponytails! Your haircut should never leave you feeling stuck with just one look!

10) Water is a girl’s best friend!

No matter how many beauty tips and tricks you read in your lifetime, the most important is this: it’s important to drink as much water as possible each and every day. It keeps your skin looking healthy, will make you feel healthy and hydrated, and your skin and hair feeling supple! It truly is a girl’s best friend.

Uppruni greinar:  http://www.collegefashion.net/beauty-and-hair/10-affordable-beauty-secrets-every-girl-should-know/


Flottasta gluggaútstillingin!

Það er alltaf gaman að sjá flottar gluggaútstillingar og á ferðum mínum erlendis legg ég mig fram um heimsækja nokkra glugga til að sjá hvað "stóru merkin" eru að gera nýtt og spennandi.

Það eru alltaf sömu merkin sem bera af í þessu og kemur varla nokkrum á óvart að Louis Vuitton gluggaútstillingarnar eru með þeim flottustu sem ég hef nokkurn tíman séð!

Hér að neðan eru myndir af nýjustu útstillingunni þeirra í Louis Vuitton Bond St. í London.

Athugið að  á nokkurra daga fresti þá brotnar nýtt og við það birtist nýr skór eða, úr eða "accessory".

Magnaður gluggi svo ekki sé meira sagt... njótið myndanna.

Louis Vuitton Bond St London

Louis Vuitton Bond St London 2

Louis Vuitton Bond St London 3


Nýttu gallabuxabuxurnar af fyrrverandi!

Ef þú ert í þann mund að sparka kallinum út er tilvalið að grípa uppáhalds gallabuxurnar hans fyrst og senda þær á Patty O og hún mun breyta þeim í ljómandi fína tösku!

Patricia Ordones eða Patty O eins og hún kýs að kalla sig er útsjónasamur, umhverfisvænn hönnuður sem tekur gömul föt og endurlífgar þau. Þetta gerir hún gjarnan með því að "splæsa" saman tveimur eða fleiri flíkum á mjög skemmtilegan máta.

Eitt af því skondnara sem hún gerir er að bjóða fólki upp á að senda til sín gallabuxur af fyrrverandi en hún breytir þeim í tösku eins og sést hér á myndinni að neðan:

Gallabuxur af fyrrverandi - Patty O

 

Á krepputímum sem þessum þá er gott að horfa til hönnuða eins og Patty en hún sýnir og sannar að ef maður er með sköpunargáfuna í lagi er algjör óþarfi að henda gömlum flíkum sem maður er hættur að nota. Þess í stað eigum við að tína þær út úr skápnum, raða á rúmið eða gólfið og velta því fyrir okkur hvernig við getum breytt þeim, bætt þær, splæst þeim saman eða gert eitthvað alveg nýtt úr þeim.

Hér eru nokkur skemmtileg dæmi...

Jakkafatahettupeysan:
Hér er jakkafatajakka splæst saman við hettupeysu. Jafnframt eru renningar af gömlum gallabuxum notaðir til að "poppa" jakkann upp ásamt smá lopa (brúnu rendurnar við hliðina á galla-röndunum)

Jakkafatahettupeysa - Flíkum splæst saman af Patty O

Gallabeltið:
Hér er búið að breyta buxnaskálm af gallabuxum í þetta líka ljómandi fína belti!

Gallabelti búið til úr gömlum buxum - Patty O

Oxford Kjóllinn:
Búinn til úr hvítri Oxford skyrtu sem áður var í eigu föðurs eigandans. Ótrúlegt hvað hægt er að gera glæsilegan kjól úr einfaldri hvítri skyrtu.

Oxford kjólinn - búinn til úr skyrtu af pabbanum - Patty O

 

Nú er bara um að gera að draga gamlar druslur út úr skápunum og leyfa sköpunargleðinni að ráða ríkjum næstu daga!


Hvernig er hártískan í haust og framan af vetri?

Þeir sem fylgjast vel með tískustraumum vita sjálfsagt hvað hefur verið að gerast í hártískunni í ár og vita jafnframt að hártískan er ekki minna mikilvæg en fatatískan. En fyrir ykkur sem vissuð ekki hvað er "inni" og hvað er "úti" í hártískunni 2010 þá er hér mikilvæg lesning fyrir veturinn.

Hártískan hefur verið mjög skemmtileg á þessu ári en þar sem árið rennur sitt skeið fljótlega er ekki seinna vænna en að kynna sér stefnu og strauma til að geta verið með sérstaklega heita klippingu það sem eftir lifir árs.

Hér er eitthvað sem þú ættir að íhuga næst þegar þú greiðir þér eða ferð í klippingu...

Fléttur
Það eru tvenns konar fléttur sem eru sérstaklega áberandi núna en það er síða hliðarfléttan og svo það sem kallað er fiskifléttan sem kom sterk inn á Missoni Spring tískusýningunni. Takið eftir því að fléttan á vera laus og frekar frjálsleg.

Fléttur - Tíska 2010

 

Sítt og liðað
Innblásturinn hér er sóttur til fimmta áratugarins en þessi stíll kom sterkur inn á síðast ári og er enn sterkari í ár. Þessi stíll virkar fyrir nær alla hárliti en er þó áhrifaminni eftir því sem hárið er dekkra. Passaðu að lokkarnir séu liðaðir án þess að verða að krullu. Einnig er mikilvægt að hárið nái niður fyrir axlir.

Liðað hár - Tíska 2010

 

Meira frá síðustu öld.. áttundi áratugurin kemur líka aftur, í tveimur útgáfum.

Sítt og slétt
Slétt og fínt, án þess þó að hárið lítið út fyrir að hafa verið klukkustundum saman í sléttujárninu. Agnetha í Abba var mikið í þessum stíl eins og margar aðrar söngkonur þessa áratugar. Þeim mun síðara hár sem þú hefur, þeim mun betur virkar þessi stíll

1970 hártíska kemur aftur 2010

Hinn stíllinn frá þessum áratug er frjálsara og náttúrulegra hár enda eflaust margar stúlkur sem aðhylltust hippamenninguna á þessum árum og því hárið látið vera eins eðlilegt og hægt er.
Þessi stíll virkar betur eftir því sem hárið er síðara og ég hef það fyrir víst að karlpeningurinn sé alla jafna hrifinn af þessu "lúkki" þar sem það segi: Náttúrulega kynþokkafull

1970 hártíska kemur aftur 2010

 

Einn af skemmtilegri stílum ársins er sleikt hár/blautt hár (mikið gel). Þessi stíll er svo sannarlega "statement" og hentar vel þeim sem vilja láta taka eftir sér.

Hér eru nokkrar útgáfur af þessu skemmtilega lúkki...

Sleikt aftur:
Sleikt aftur - Tíska 2010

Sleikt til hliðar:
Sleikt til hliðar - tíska 2010

Karlmannlega útgáfan:
Karlmannlega sleikt hár - Tíska 2010

 

Hnúta, hnúðar og aðrar útfærslur
Á hverju ári er alltaf að minnska kosti ein "upp" eða "út" hárgreiðsla og er árið 2010 engin undantekning. Og reyndar gott betur því í ár fengum við 4 útgáfur.

The Chignon
Dregur uppruna sinn úr frönsku: "chignon du cou" sem þýðir aftan á hálsinum. The chignon er einfaldlega smart snúður eða vafningur sem situr neðst á hnakkanum.

The Chignon - Hártíska 2010

The Top Knot
Eins og nafnið gefur til kynna er þetta einfaldlega þéttu snúður sem situr á toppnum :)

The Top Knot - Hártíska 2010

 Svo er hér önnur útfærsla af The Top Knot sem er lausari og mjög frjálsleg

Messy Top Knot - hártíska 2010

Nýstálegar fléttur/vafningar
Ég minntist áður á síðu hliðarfléttuna en fléttur er mjög áberandi í tískunni þetta árið. Hér er mjög skemmtilega útgáfa sem minnir á reipi - slíkar fléttur sem og ýmiskonar snúningsútgáfur eða vafningar eru mjög skemmtilegar og ferskar.

RopeTwist - Hártíska 2010

 

Látum þetta gott í bili um hártískuna enda um nóg að hugsa fyrir ykkur sem eruð að spá í nýjan stíl fyrir veturinn.

 

 


Handunnar töskur - Umhverfisvænar og smart

Ég mun seint skilja þær dömur sem eiga bara eina tösku eða tvær. Það er ekki nóg með það að maður þurfi ólíkar töskur fyrir ólík tilefni heldur er líka mikilvægt eiga réttu töskuna sem fullkomar "lúkkið" hverju sinni.. og ekki er verra ef þær eru "fashion statement"!

Ég uppgötvaði nýlega mjög skemmtilega netverslun sem selur mjög skemmtilegar, handunnar töskur. Töskurnar eru ekki bara flottar heldur líka umhverfisvænar. Þær eru meðal annars búnar til úr sælgætisumbúðum, gosflöskumiðum, tímaritum og ýmsu fleiru sem hefði getað endað á ruslahaugunum. Ekki nóg með það, heldur er líka gróðursett tré fyrir hverja selda tösku.

Þessar töskur eru framleiddar af fyrirtækinu Ecoist en eru fáanlegar hér á landi í gegnum netverslunina Kolors

Þess má líka geta að Samantha (Kim Cattrall) var með töskuna hér að neðan í kvikmyndinni Sex and the City 2

The Daily - Silver - fæst hjá Kolors.is

"The Silver Mega is very modern, the proportion is perfect, its got a very glamorous look, day glamour”
  - Sex and the City Stylist Danny Santiago

Hér eru svo nokkrar fleiri flottar af síðunni www.Kolors.is

Coin Purse - MM - Kolors.is  Coin Purse - Silver - Kolors.is


Pochette - Bar Code - Kolors.is  Satchel - PacMan - Kolors.is 


Heppinn háskólanemi fataður upp frítt af Emami

Næstkomandi fimmtudagskvöld (2. sept)  verður svokallað SHÍ kvöld í verslun Emami að Laugavegi 66.

Búðin verður opnuð sérstaklega fyrir nema í Háskóla Íslands frá klukkan 19-22.
Allar vörur í búðinni verða á 25% afslætti
og boðið verður upp á léttar veitingar.

Í lok kvöldsins verður svo heppinn stúdent dreginn út og fær hann fulla endurgreiðslu á keyptum vörum!

Ef þú ert í Háskóla Íslands þá viltu ekki missa af þessu einstaka tækifæri. 
ps. ekki vera feimin(n) við að koma með vini ;)

SHÍ kvöld í verslun Emami fimmtudaginn 2. sept.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Emami búðin
Emami búðin

Emami búðin
Laugavegi 66
S: 511 1880
www.Emami.is

Nýjustu myndir

  • Töff par í Emami Kringlunni - Jól 2010
  • Glæsilegir skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Flowing Shirt - Glæsilegur skyrtukjóll úr hágæða áprentuðu silki
  • A Dress - nýr umbreytanlegur kjóll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband