Nýjir skór í Emami Kringlunni

Vorum að fá nokkur pör af stórglæsilegum skóm í bland við allt hitt nýja góðgætið.

Hér eru 3 alveg súper heit pör...

Skór í Emami Kringlu - Jól 2010

Glæsilegir skór í Emami Kringlu - Jól 2010 

 Töff par í Emami Kringlunni - Jól 2010


Ný verslun í Kringlunni, nýjar vörur og aukið úrval aukahluta

Við vorum að opna nýja verslun í Kringlunni fyrir nokkrum dögum síðan og munu birtast myndir hér á næstunni þaðan.

Við höfum rekið verslun á Laugaveginum í eitt ár núna og það hefur gengið vonum framar. Því fannst okkur eðlilegt framhald að athuga hvort Kringlan væri ekki staður fyrir okkur sérstaklega þar sem ekki eru margar verslanir með íslenska fatahönnun þar.

Við sama tækifæri frumsýndum við þó nokkuð af nýjum vörum en fyrir jólin leggjum við sérstaka áherslu á fallegar flíkur úr 100% silki og svo silkiflíkur með séhönnuðu printi sem kemur í frekar litlu upplagi fyrir jólin.

Við höldum auðvitað áfram með þemað okkar, sem gengur út á fjölnota eða umbreytanlegar flíkur, og kynnum nokkrar slíkar fyrir jólin ásamt því sem við kynnum nýja línu af hefðbundnum fatnaði (þ.e. ekki umbreytanlegum)

Við höfum einnig stækkað vöruúrvalið okkar töluvert með því að bjóða upp á virkilega sérstaka og flotta aukahluti, þar á meðal íslenska hönnunarmerkið Varius sem flestir þekkja núorðið. Að auki munum við bjóða upp á Kolors töskurnar sem eru vægast sagt frumlegar og flottar, búnar til úr endurunnum umbúðum og tímaritum og allar unnar samkvæmt fair trade stöðlum.

Það er verið að skipuleggja myndatöku á næstu dögum af nýju flíkunum en við erum svo spennt að sýna ykkur herlegheitin að við stukkum inn í Kringlu og smelltum af nokkrum myndum til að geta birt samstundis hér!

Njótið...

Limitless Dress í áprentuðu silki

Fyrir ofan er The Limitless Dress í áprentuðu silki. Hönnunin á printinu kemur frá Unni Garðarsdóttur. Kjóllinn er nú einnig fáanlegur í einlitu silki. Þetta er lang vinsælasti kjóllinn frá okkur og hefur lengi verið kallaður "Emami kjóllinn"

Liberty Wrap kápan, klædd að innan með áprentuðu silki

Fyrir ofan er Liberty Wrap kápan okkar, klædd að innan með áprentuðu silki. Hún er einnig fáanleg með svörtu pólýester að innan í stað silki.

A Dress - nýr umbreytanlegur kjóll

Hér að ofan er svokallaður A kjóll en hann er glænýr og umbreytanlegur (multifunctional). Hann kemur bæði í vinsæla jersey efninu okkar sem og silki.

Flowing Shirt - Glæsilegur skyrtukjóll úr hágæða áprentuðu silki

Að ofan er Flowing Shirt sem er glæsilegur skyrtukjóll úr sérlega vönduðu, áprentuðu silki. Hönnunin á printinu er eftir Unni Garðarsdóttur

Um leið og myndatöku lýkur á öllum nýju flíkunum okkar þá verða þær birtar hér en það er auðvitað bara um að gera að mæta bara í nýju verslunina okkar í Kringlunni og máta alla dýrðina!


Glæsileg lína frá Lanvin í H&M

Ofurmódelið Irina Lazareanu er hér í glæsilegri línu Lanvin fyrir H&M - haust og vetrartískan 2010

ATH: Hægt er að smella á myndirnar til að sjá stærri útgáfu!

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 1

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 2

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 3

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 4

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 5

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 6

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 7

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 8

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 9

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 10

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 11

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 12

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 13

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 14

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 15

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 16

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 17

H&M - Haust Vetur 2010 - Irina Lazareanu - 18

 


Charlize Theron og Orlando Bloom flott fyrir Uniqlo - Haust 2010

Það þarf nú varla að kynna Charlize Theron og Orlando Bloom fyrir landanum en hér eru þau í mjög flottri auglýhsingaherferð fyrir Uniqlo að sýna tísku fyrir haustið 2010.

Charlize Theron og Orlando Bloom flott fyrir Uniqlo - Haust 2010 - 1 

Charlize Theron og Orlando Bloom flott fyrir Uniqlo - Haust 2010 - 2 

Charlize Theron og Orlando Bloom flott fyrir Uniqlo - Haust 2010 - 3 

Charlize Theron og Orlando Bloom flott fyrir Uniqlo - Haust 2010 - 4

Charlize Theron og Orlando Bloom flott fyrir Uniqlo - Haust 2010 - 5 

Charlize Theron og Orlando Bloom flott fyrir Uniqlo - Haust 2010 - 6 

Charlize Theron og Orlando Bloom flott fyrir Uniqlo - Haust 2010 - 7 

Charlize Theron og Orlando Bloom flott fyrir Uniqlo - Haust 2010 - 7 


Ofurmódelið Jon Kortajarena flottur fyrir Karl Lagerfeld

Karl Lagerfeld ryðst inn í haustið með flottum auglýsingum. Hér er á ferðinni spænska ofurmódelið Jon Kortajarena á myndum fyrir haustið 2010 en það var enginn annar en Karl Lagerfeld sjálfur sem tók myndirnar!

Jon Kortajarena - Karl Lagerfeld - Fall 2010 - 1 

Jon Kortajarena - Karl Lagerfeld - Fall 2010 - 2 

Jon Kortajarena - Karl Lagerfeld - Fall 2010 - 3 


Klikkaðar naglaskreytingar á "Nailympics 2010"

Hverjum hefði dottið í hug að það væru haldnir Ólympíuleikar í skreyttum gervinöglum?! Eins undarlegt og það hljómar þá standa Bretar nú samt árlega fyrir alþjóðlegri keppni sem kallast "Nailympics".

Á Nailympics koma saman ótrúlega frumlegir og skemmtilegir einstaklingar sem margir hverjir eru að gera ótrúlega furðulega hluti í naglaskreytingum. Ég hélt ég hefði nú séð flest allt í þessum geira en þessir naglaólympíuleikar slá gjörsamlega öllu við.

Nú nýverið var þessi keppni haldin í London en þar tóku þátt 354 keppendur frá 24 löndum. Hér að neðan eru nokkrar myndir sem sýna glögglega hversu fjölsbreyttir og villtir keppendur eru!

Nailympics 2010 í London - 1 

Nailympics 2010 í London - 2 

Nailympics 2010 í London - 3 

Nailympics 2010 í London - 4 


Svalir tannburstar fyrir svalt fólk!

Hingað til hafa tannburstar ekki beinlínis verið svalir, töff eða sniðugir. Þeir líta vissulega mismunandi út en það hefur meira með virkni þeirra að gera heldur en nokkuð annað. Það er hinsvegar að breytast.

Yumaki er Japanskt fyrirtæki sem framleiðir hágæða vörur fyrir tannhirðu og þeir voru að senda frá sér nýja línu af tannburstum sem eru líklegir til að breyta landslaginu í tannburstabransanum til frambúðar.Tannburstarnir frá þeim virka ekki bara.. heldur eru þeir hrikalega svalir og töff!

Fjölbreytnin er skemmtileg og óhætt að fullyrða að hver og einn ætti að geta fundið sinn bursta. Burstarnir kosta $8 og þeir senda til Íslands! http://www.yumaki.com/

Yumaki tannburstar 


VIP Kvöld í Emami búðinni

VIP Listi EMAMI

Í gærkveldi var svokallað VIP kvöld fyrir valda viðskiptavini og aðra sem eru á VIP listanum okkar.

Tilefnið var að gefa þessum hópi kost á að koma á hálfgerða for-útsölu en í dag, 1. október hófst svakalegt verðhrun í búðinni hjá okkur og eru dæmi um vörur á 80% afslætti á meðan birgðir endast.

Það er óhætt að segja að þetta VIP kvöld hafi heppnast vel því húsið var fullt frá 18-21 og allir mjög ánægðir.

Einn fékk allt endurgreitt!
Við vorum líka með skemmtilegan leik í gangi í gærkveldi en í lok kvöldis var heppinn viðskiptavinur dreginn út en það var hún Guðmunda Elíasdóttir sem var dreginn út og fékk hún því allt sem hún keypti endurgreitt - Hún fékk því frí föt að verðmæti 20.680 kr
Við höfum því ákveðið að halda reglulega svona VIP kvöld í EMAMI búðinni.

Vilt þú komast á VIP listann?
Komdu þá bara við í búðinni hjá okkur á Laugavegi 66 og láttu skrá þig á listann.. það kostar ekkert!


Karlmannsnærbuxur í áskrift!

Það er ýmislegt sem snjöllum frumkvöðlum dettur í hug. Hér er eitt "concept" sem er að slá rækilega í gegn í Bandaríkjunum en það eru Sokkar og nærföt í áskrift!

Það er alveg ljóst að strákar eru latir þegar kemur að því að kaupa inn sokka og nærföt og þeir geta ekki ætlast til þess að betri helmingurinn sjái alltaf um þessi innkaup fyrir þá. Það eru einmitt þessar ástæður sem hafa orðið til þess að netverslunin Manpacks hefur slegið rækilega í gegn í Bandaríkjunum enda um mjög sniðuga og ódýra þjónustu að ræða.

Hjá þeim er hægt að velja um mis stóra pakka sem eru sendir í áskrift á 3ja mánaða fresti. Einnig er hægt að setja saman "custom" pakka fyrir þá sem eru með sérþarfir.  Merkin eru ekki af verri endanum en hægt er fá ódýr  nærföt frá Hanes eða vera grand á því og velja Calvin Klein og American apparel í pakkann sinn.

Er ekki einhver duglegur frumkvöðull sem vill leysa vanda íslenskra karlmanna með því að setja upp svona sjoppu hér á landi?

Kíktu á netverslunina þeirra: www.Manpacks.com 

Manpacks - Nærföt og sokkar í áskrift 


Láttu netheima dæma "outfittið" þitt!

Hversu þægilegt væri að hafa hóp af einstaklingum alltaf tilbúna til að segja manni hvort þessi peysa gangi með þessum buxum eða hvort þetta look sé betra en hitt lookið?

Núna hefurðu aðgang að slíkum hópi allan sólahringinn, allt árið. Á vefnum Go Try It On geturð þú skellt inn mynd af þér og fengið netverja til að dæma hana. Þú getur sett inn eina mynd og látið velja um "Change It" og "Wear It" eða þú getur sett inn nokkrar myndir og látið kjósa um hvaða útlit fer þér best. Svo geturðu auðvitað látið þína skoðun í ljós á fatavali annarra.. allt nafnlaust að sjálfsögðu.

Endilega kíktu á http://www.gotryiton.com

www.GoTryItOn.com - Láttu þína skoðun í ljós! 


Næsta síða »

Höfundur

Emami búðin
Emami búðin

Emami búðin
Laugavegi 66
S: 511 1880
www.Emami.is

Nýjustu myndir

  • Töff par í Emami Kringlunni - Jól 2010
  • Glæsilegir skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Flowing Shirt - Glæsilegur skyrtukjóll úr hágæða áprentuðu silki
  • A Dress - nýr umbreytanlegur kjóll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband