30.8.2010 | 10:34
Kjólar og stjörnur á rauða dreglinum - Emmy verðlaunin 2010
Emmy verðlaunin voru haldin með pompi og prakt í gær í Los Angeles. Eins og vanalega þá kom hver stjarnan á fætur annarri í stórglæsilegum flíkum frá helstu hönnuðum veraldar.
Hér eru nokkrar myndir af því besta og versta sem sást á rauða dreglinum í gær:
Jon Hamm úr Mad Man og Jennifer Westfeldt:
Lea Michele úr Glee
Amber Riley úr Glee
JennaUshkowitz úr Glee
Dianna Agron úr Glee
Anna Paquin og Stephen Moyer úr True Blood
Claire Danes
John Krasinski úr Office US ásamt Emily Blunt
January Jones úr Mad Men
Toni Collette úr United States of Tara
Rutina Wesley úr True Blood
Michael C Hall og Jennifer Carpenter úr Dexter
Julie Benz úr Dexter
Tina Fey úr 30 Rock
Kim Kardashian
Kelly Osbourne
Stephanie Pratt úr The Hills
Kevin Bacon og Kyra Sedgwick
Lauren Graham úr Parenthood
Mariska Hargitay úr Law & Order: Special Victims Unit
Naya Rivera úr Glee
Sarah Hyland úr Modern Family
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2010 | 11:45
Betra útlit: nokkur góð ráð!
Á ferðum mínum um vefheima rekst ég reglulega á ýmis góð ráð varðandi útlit og "viðhald fegurðar". Mér datt í hug að deila nokkrum slíkum ráðum með ykkur hér á blogginu enda duga fallegar flíkur skammt ef húðin lítur illar út og hárið er í klessu!
Hér eru nokkur góð ráð frá sérfræðingum:
- Hiti og hár
"Gættu þess að greiða alltaf úr öllum flækjum og hnútum áður en þú ferð í heita sturtu eða bað - ef þú gerir það ekki mundu kljúfa enda og skemma annars fallega hárenda. Þegar þú hefur greitt úr flækjunum ætti þú svo að skola hárið með volgu vatni til að opna hársekkina og til að losna við öll efni úr því (styling products). Síðan geturðu skellt þér í notalega sturtu/bað!"
Lisa Shepherd - haircare expert
- Mix dagsins
"Að nota sama lit af naglalakki á bæði fingur og tær er frekar lummó. Hugsaðu þetta frekar svona: Sæt og prúð á fingrunum en djörf og hress á tánum. Haltu þig við smart, náttúrulega liti að ofan en leiktu þér með kraftmeiri og djarfari litum að neðan. Þeim mun sterkara og djarfara - þeim mun betra."
Iris Chapple - Mavala
- Saltaða lausnin
"Hefurðu tekið eftir því að flekkót húð lítur mun betur út eftur sundsprett í sjónum? Það hafa því miður ekki allir aðgang að sjó eða tækifæri til að baða sig í honum og því gott að vita að það er hægt að framkvæma þetta heima. Fylltu vaskinn af sjóðandi heitu vatni og blandaðu það með vænum skammti af salti (ekki spara saltið). Rennbleyttu svo handklæði í heitu saltvatninu og leggðu það á flekkóta húðina í u.þ.b. 10 mínútur. Þetta er frábært til að gera húðina á andliti, bringu og baki fallegri og ferskari."
Stella beauty team
- Hið fullkomna tagl
"Til að fá háriðí hið fullkomna tagl skaltu tillgja á bakinu á rúminu þínu með höfuðið útfyrir brúnina. Taktu hárið saman á krúnunni, eða neðar ef það hentar þér. Ef þú vilt það sérstaklega smart þá skaltu úða smá vatni á burstann áður en þú notar hann. Að launum færðu mjúkt, fullkomlega lagað tagl sem jafnast á við ódýra andslitslyftingu."
Alex Box - make up artist
Látum þessi ráð duga í bili en fleiri ráð verða að sjálfsögðu birt hér á komandi vikum og mánuðum.
Lífstíll | Breytt 30.8.2010 kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2010 | 10:45
Girnilegt glingur á fingur
Maður heyrir í sífellu að hundar sé "besti vinur mannsins" og eflaust er það rétt, ef við gefum okkur að átt sé við karlmenn. Því eins og allir vita eru demantar besti vinur dömunnar!
Það mun því gleðja margar dömurnar að Astley Clarke er núna að senda frá sér sína eigin línu. Í fjögur ár hefur AC fært okkur nokkra af glæsilegustu skartgripum heims frá þekkum hönnuðum á borð við Shaun Leane, Caronlina Bucci, Asha by ADM og Agrigento. Þetta hefur fært AC mikla þekkingu og skilning á markaðnum eru þeir því að senda frá sér sína eigin línu af skartgripum.
Það eru 7 flokkar línunni þeirra en það sem okkur fannst mest spennandi er "AC Colour Collection" með afar flottum og litríkum hringum og armböndum sem hægt er að raða saman (stackable), "AC Diamonds Range" sem minnti okkur svo sannarlega á að demantar eru bestu vinir kvenna og svo féllum við í stafi yfir "AC Tearoom collection" - hringir sem væri mjög gaman að sjá koma í stað hefðbundinna trúlofunarhringa
Heimasíða AC: http://www.astleyclarke.com
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 10:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2010 | 10:01
Haust 2010: Sex sjóðheit trend
Tískuritið NY Magazine birti nýlega mjög flott slæðukynningu (slideshow) þar sem þeir sýna 6 heit trend í haustlínu helstu fatahönnuða heims.
Þessi trend eru sem hér segir (á ensku):Blazers, Capes, Nordic, Plaid, Socks, Sporty Nights
Það er sérstaklega gaman að sjá að Skandinavía er alltaf að stimpla sig betur og betur inn.
Hér er hlekkur á myndirnar: http://nymag.com/daily/fashion/2010/08/fall_trends_slideshow.html#photo=1x58350
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 10:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2010 | 12:50
Haust og vetrartískan 2010: Skór
Skólarnir eru að byrja, haustlaufin eru byrjuð að gulna og maður finnur hvernig morgnarnir eru svalari þrátt fyrir heiðan himinn og sól á lofti. Það er því ekki úr vegi að fara að velta því fyrir sér hvaða skó eigi að fá sér um næstu mánaðarmót þegar haustið byrjar "formlega" hjá flestum.
Það er margt mjög spennandi að gerast í haust og vetur í skótískunni en hér er það helsta:
Feldur - þ.e. loðnir skór og stígvél.
Feldinn þekkjum við nú ágætlega en hann hefur mikið verið notaður á flatbotna stígvélum og sumir djarfari hönnuðir notað hann til skrauts á ýmsar útgáfur af hælaskóm. Í vetur munum við hinsvegar sjá feldinn koma inn af fullum krafti í ýmsum útgáfum. Ef þú átt aur í buddunni þá er varla hægt að sleppa því að eignast par af Chanel eða Louboutin loðstígvélum.
Chanel
Alexander Wang Polina (Goat fur)
Christian Louboutin (Coyote Fur)
Lanvin
Reimar - Reimuð stígvél
Reimar eru að koma aftur sterkar inn þannig að það ætti ekki að koma neinum á óvart að reimuð stígvél verða vinsæl í haust og vetrartískunni. Hvernig væri nú að breyta aðeins til, sýna smá hugrekki og fá sér frekar rauð stígvél í vetur heldur en eitthvað sígilt svart?
Hér eru nokkur sjóðheit og seiðandi...
Givenchy
Christian Dior
Hér er annar frá Dior, takið eftir því að hér eru bæði reimar og sylgja en sylgjur verða líka áberandi í vetur.
Fendi
Sylgjur
Oftast skiptast nú á reimar og sylgjur á en í vetur verður hvorutveggja í gangi sem er frábært því bæði eykur það fjölbreytnina og tryggir að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Það er líka gaman sjá hvernig verið er að nota reimar og sylgjur saman samanber parið frá C. Dior hér að ofan.
Hér er nokkrir sem erfitt verður að neita sér um...
Julien Macdonald - ótrúlega smart par en verður kannski erfitt í íslenska slabbinu og snjónum (ef hann kemur þá)
Christian Dior
Michael Kors
Burberry Prorsum
Hælatískan
Eins og sjá má á myndunum hér að ofan verður ýmislegt í gangi hvað hæla snertir er hér eru helstu áherslur vetrarins:
Stilettos (þessir grönnu, löngu hælar)
Stilettos eru frekar sígildir og alltaf vinsælir enda mjög sparilegir og gera mikið fyrir þær konur sem treysta sér til að ganga á þessum annars erfiðu hælum. Það eru þó nokkrur Stiletto pör á myndunum hér að ofan en hér er nokkrir jóla og áramótalegir :)
Nina Ricci
Christian Louboutin
Prada - Ekki ódýrir.. en svooo sexy!
Brian Atwood (áramótaskórinn í ár?)
Hælatískan framhald...
Chunky heels (þessir breiðu þægilegu)
Þrátt fyrir að Stilettos séu sexy og smart þá er erfitt að ætla að ganga í þeim alla daga (eða bara heilt kvöld), því er nauðsynlegt að eiga tvö eða þrjú pör á þægilegri hælum.
Versace
Fendi
Hælatískan framhald...
Wedges - Heilir hælar
Wedges voru gríðarlega vinsælir en eru smátt og smátt á leiðinni út aftur. Það eru þó enn nokkrir af stóru nöfnunum að eltast við þá en þeir eru ekki lengur það heitasta að mínu mati þó þeir séu enn inni. Persónulega myndi ég setja peningana mína í eitthvað sem er nýrra og meira spennandi.
En ef þú ert ennþá mjög skotin í heilum hælum þá eru hér nokkrir góðir...
Thakoon
Bottega Veneta
Stígvél upp á mið læri
Há stígvél voru mjög heit á síðasta "seasoni" og verður engin breyting þar á í vetur. Ef þú vilt vera sexy og djörf þá er um að gera að skella sér sjóðheitt par af háðum leðurstígvélum.
Hér er Barbara Bui með skemmtilegt mix, há leðurstígvél á háum hæl með þykkum sóla.
Roberto Cavalli - alltaf djafur, alltaf smart
Stella McCartney - Leyfði þessum að fljóta með, hann er frá því í sumar og svo sannarlega ekki fyrir hvern sem er.. en þær sem þora og bera hann vel munu geisla af kynþokka. (einnig fáanlegur í leðri)
Það er óhætt að segja að misjaft orð fari af svona háum stígvélum og margir tengja þau við glyðruhátt þar sem þeim fylgja gjarnan mikill kynþokki. Fyrir ykkur sem ekki þorið eða viljið hreinlega ekki láta sjá ykkur í svona stígvélum býð ég aðra lausn. Það er svokallaður "leg warmer" frá Alexander Wang. Hann mun ylja ykkur á kaldari dögum og jafnframt ýta undir kynþokkann án þess að vera glyðrulegur.
Hér er Leg Warmer frá Alexander Wang
Háir hælar ásamt þykkum(háum) sóla
Háir hælar eru vitanlega alltaf í tísku en núna eru þykkari sólar (high platform) að koma gríðarlega sterkt inn. Þó margir séu að gera undarlega hluti með þessa tísku þá eru flestir að gera mjög flotta hluti og mikið af flottum pörum að koma.
Yves Saint Laurent
Nicholas Kirkwood
Christian Siriano
Givenchy
Litagleði/litamix
Þeir sem eru djarfir í litavali í fatnaði ættu að fagna því sumir af djarfari hönnuðum í skógeiranum eru að færa sig upp á skaftið. Menn eru að blanda sterkari litum saman og fara óhefðbundnar leiðir í því hvað fer saman og hvað ekki.. sést sennilega einna best á þessum hér frá Balenciaga:
Lífstíll | Breytt 26.8.2010 kl. 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2010 | 10:17
Styttist í Curve gallabuxnalínu frá Levi
Það er gaman að segja frá því að Levi Strauss er í þann mund að setja á markað nýja línu af gallabuxum sem eiga að sýna mýkri og bogadregnari línur en áður hefur þekkst hjá þeim.
Það er óhætt að segja að þetta sé dálítil stefnubreyting hjá þeim enda var þessi ekki ákvörðun tekin í flýti heldur er hún niðurstaða eftir miklar markaðsrannsóknir. Hugsunin á bakvið þessa nýju Curve ID línu er að kúnni eigi að geta fundið buxur sem passa fullkomlega algjörlega óháð lögun líkamans (þ.e. lítil eða stór rass, miklar eða litlar mjaðmir og svo framvegis)
Levi fyrirtækið fór semsagt í svakalega rannsóknarvinnu á kvenlíkamanum en rannsóknin stóð yfir í 18 mánuði víðsvegar um heiminn. Þeir tóku viðtal viðtal við yfir 60.000 konur frá 13 löndum en það sem er enn merkilegra er að þeir framkvæmdu svokallað "body scan" af þeim öllum til að fá alvöru mælingar og tölfræði. Þessar body scan upplýsingar ættu að skila því að sniðin í Curve ID línunni falli betur að kvenlíkamanum en við höfum séð áður.
Þetta er sennilega í fyrsta skipti á gallabuxnamarkaðinum að framleiðandi fari í alvöru þrautagöngu og rannsóknarvinnu áður en hann framleiðir vörurnar sínar. Vonandi eru svona vinnubrögð eitthvað sem við munum sjá í auknu mæli frá stóru framleiðendunum í tískugeiranum á komandi árum.
Gallabuxurnur koma á markað í Bandaríkjunum í september og verða fáanlegar í þremur flokkum: nett kúrva, meðal kúrva og mikil kúrva. (sjá meðfylgjandi mynd)
Það verður spennandi að sjá hvort þessar buxur rati ekki í verslanir hérlendis svo fagrir bodagregnir bossar fái að njóta sín enn betur götum borgarinnar.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.8.2010 | 10:17
EMAMI Búðin bloggar um tísku og tengd efni
Nú styttist í að Emami búðin á Laugavegi 66 verði eins árs og því ekki seinna vænna að setja upp bloggsíðu þar sem fjallað verður um tísku, förðun og fleira því tengdu.
Að sjálfsögðu munum við svo fjalla hér um okkar vörur, kynna nýjungar og segja frá tilboðum og útsölum og kynna hvað er gangi hverju sinni í búðinni okkar.
Jafnframt viljum við nota tækifærið og þakka þær frábæru viðtökur sem búðin hefur fengið en þær hafa farið fram úr okkar björtustu væntingum.
Kveðja,
Starfólk Emami verslunarinnar á Laugavegi 66

Lífstíll | Breytt s.d. kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar