Ný verslun í Kringlunni, nýjar vörur og aukið úrval aukahluta

Við vorum að opna nýja verslun í Kringlunni fyrir nokkrum dögum síðan og munu birtast myndir hér á næstunni þaðan.

Við höfum rekið verslun á Laugaveginum í eitt ár núna og það hefur gengið vonum framar. Því fannst okkur eðlilegt framhald að athuga hvort Kringlan væri ekki staður fyrir okkur sérstaklega þar sem ekki eru margar verslanir með íslenska fatahönnun þar.

Við sama tækifæri frumsýndum við þó nokkuð af nýjum vörum en fyrir jólin leggjum við sérstaka áherslu á fallegar flíkur úr 100% silki og svo silkiflíkur með séhönnuðu printi sem kemur í frekar litlu upplagi fyrir jólin.

Við höldum auðvitað áfram með þemað okkar, sem gengur út á fjölnota eða umbreytanlegar flíkur, og kynnum nokkrar slíkar fyrir jólin ásamt því sem við kynnum nýja línu af hefðbundnum fatnaði (þ.e. ekki umbreytanlegum)

Við höfum einnig stækkað vöruúrvalið okkar töluvert með því að bjóða upp á virkilega sérstaka og flotta aukahluti, þar á meðal íslenska hönnunarmerkið Varius sem flestir þekkja núorðið. Að auki munum við bjóða upp á Kolors töskurnar sem eru vægast sagt frumlegar og flottar, búnar til úr endurunnum umbúðum og tímaritum og allar unnar samkvæmt fair trade stöðlum.

Það er verið að skipuleggja myndatöku á næstu dögum af nýju flíkunum en við erum svo spennt að sýna ykkur herlegheitin að við stukkum inn í Kringlu og smelltum af nokkrum myndum til að geta birt samstundis hér!

Njótið...

Limitless Dress í áprentuðu silki

Fyrir ofan er The Limitless Dress í áprentuðu silki. Hönnunin á printinu kemur frá Unni Garðarsdóttur. Kjóllinn er nú einnig fáanlegur í einlitu silki. Þetta er lang vinsælasti kjóllinn frá okkur og hefur lengi verið kallaður "Emami kjóllinn"

Liberty Wrap kápan, klædd að innan með áprentuðu silki

Fyrir ofan er Liberty Wrap kápan okkar, klædd að innan með áprentuðu silki. Hún er einnig fáanleg með svörtu pólýester að innan í stað silki.

A Dress - nýr umbreytanlegur kjóll

Hér að ofan er svokallaður A kjóll en hann er glænýr og umbreytanlegur (multifunctional). Hann kemur bæði í vinsæla jersey efninu okkar sem og silki.

Flowing Shirt - Glæsilegur skyrtukjóll úr hágæða áprentuðu silki

Að ofan er Flowing Shirt sem er glæsilegur skyrtukjóll úr sérlega vönduðu, áprentuðu silki. Hönnunin á printinu er eftir Unni Garðarsdóttur

Um leið og myndatöku lýkur á öllum nýju flíkunum okkar þá verða þær birtar hér en það er auðvitað bara um að gera að mæta bara í nýju verslunina okkar í Kringlunni og máta alla dýrðina!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Emami búðin
Emami búðin

Emami búðin
Laugavegi 66
S: 511 1880
www.Emami.is

Nýjustu myndir

  • Töff par í Emami Kringlunni - Jól 2010
  • Glæsilegir skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Flowing Shirt - Glæsilegur skyrtukjóll úr hágæða áprentuðu silki
  • A Dress - nýr umbreytanlegur kjóll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband