Nýttu gallabuxabuxurnar af fyrrverandi!

Ef þú ert í þann mund að sparka kallinum út er tilvalið að grípa uppáhalds gallabuxurnar hans fyrst og senda þær á Patty O og hún mun breyta þeim í ljómandi fína tösku!

Patricia Ordones eða Patty O eins og hún kýs að kalla sig er útsjónasamur, umhverfisvænn hönnuður sem tekur gömul föt og endurlífgar þau. Þetta gerir hún gjarnan með því að "splæsa" saman tveimur eða fleiri flíkum á mjög skemmtilegan máta.

Eitt af því skondnara sem hún gerir er að bjóða fólki upp á að senda til sín gallabuxur af fyrrverandi en hún breytir þeim í tösku eins og sést hér á myndinni að neðan:

Gallabuxur af fyrrverandi - Patty O

 

Á krepputímum sem þessum þá er gott að horfa til hönnuða eins og Patty en hún sýnir og sannar að ef maður er með sköpunargáfuna í lagi er algjör óþarfi að henda gömlum flíkum sem maður er hættur að nota. Þess í stað eigum við að tína þær út úr skápnum, raða á rúmið eða gólfið og velta því fyrir okkur hvernig við getum breytt þeim, bætt þær, splæst þeim saman eða gert eitthvað alveg nýtt úr þeim.

Hér eru nokkur skemmtileg dæmi...

Jakkafatahettupeysan:
Hér er jakkafatajakka splæst saman við hettupeysu. Jafnframt eru renningar af gömlum gallabuxum notaðir til að "poppa" jakkann upp ásamt smá lopa (brúnu rendurnar við hliðina á galla-röndunum)

Jakkafatahettupeysa - Flíkum splæst saman af Patty O

Gallabeltið:
Hér er búið að breyta buxnaskálm af gallabuxum í þetta líka ljómandi fína belti!

Gallabelti búið til úr gömlum buxum - Patty O

Oxford Kjóllinn:
Búinn til úr hvítri Oxford skyrtu sem áður var í eigu föðurs eigandans. Ótrúlegt hvað hægt er að gera glæsilegan kjól úr einfaldri hvítri skyrtu.

Oxford kjólinn - búinn til úr skyrtu af pabbanum - Patty O

 

Nú er bara um að gera að draga gamlar druslur út úr skápunum og leyfa sköpunargleðinni að ráða ríkjum næstu daga!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Emami búðin
Emami búðin

Emami búðin
Laugavegi 66
S: 511 1880
www.Emami.is

Nýjustu myndir

  • Töff par í Emami Kringlunni - Jól 2010
  • Glæsilegir skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Flowing Shirt - Glæsilegur skyrtukjóll úr hágæða áprentuðu silki
  • A Dress - nýr umbreytanlegur kjóll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband