8.9.2010 | 12:02
Hvernig er hártískan í haust og framan af vetri?
Þeir sem fylgjast vel með tískustraumum vita sjálfsagt hvað hefur verið að gerast í hártískunni í ár og vita jafnframt að hártískan er ekki minna mikilvæg en fatatískan. En fyrir ykkur sem vissuð ekki hvað er "inni" og hvað er "úti" í hártískunni 2010 þá er hér mikilvæg lesning fyrir veturinn.
Hártískan hefur verið mjög skemmtileg á þessu ári en þar sem árið rennur sitt skeið fljótlega er ekki seinna vænna en að kynna sér stefnu og strauma til að geta verið með sérstaklega heita klippingu það sem eftir lifir árs.
Hér er eitthvað sem þú ættir að íhuga næst þegar þú greiðir þér eða ferð í klippingu...
Fléttur
Það eru tvenns konar fléttur sem eru sérstaklega áberandi núna en það er síða hliðarfléttan og svo það sem kallað er fiskifléttan sem kom sterk inn á Missoni Spring tískusýningunni. Takið eftir því að fléttan á vera laus og frekar frjálsleg.
Sítt og liðað
Innblásturinn hér er sóttur til fimmta áratugarins en þessi stíll kom sterkur inn á síðast ári og er enn sterkari í ár. Þessi stíll virkar fyrir nær alla hárliti en er þó áhrifaminni eftir því sem hárið er dekkra. Passaðu að lokkarnir séu liðaðir án þess að verða að krullu. Einnig er mikilvægt að hárið nái niður fyrir axlir.
Meira frá síðustu öld.. áttundi áratugurin kemur líka aftur, í tveimur útgáfum.
Sítt og slétt
Slétt og fínt, án þess þó að hárið lítið út fyrir að hafa verið klukkustundum saman í sléttujárninu. Agnetha í Abba var mikið í þessum stíl eins og margar aðrar söngkonur þessa áratugar. Þeim mun síðara hár sem þú hefur, þeim mun betur virkar þessi stíll
Hinn stíllinn frá þessum áratug er frjálsara og náttúrulegra hár enda eflaust margar stúlkur sem aðhylltust hippamenninguna á þessum árum og því hárið látið vera eins eðlilegt og hægt er.
Þessi stíll virkar betur eftir því sem hárið er síðara og ég hef það fyrir víst að karlpeningurinn sé alla jafna hrifinn af þessu "lúkki" þar sem það segi: Náttúrulega kynþokkafull
Einn af skemmtilegri stílum ársins er sleikt hár/blautt hár (mikið gel). Þessi stíll er svo sannarlega "statement" og hentar vel þeim sem vilja láta taka eftir sér.
Hér eru nokkrar útgáfur af þessu skemmtilega lúkki...
Hnúta, hnúðar og aðrar útfærslur
Á hverju ári er alltaf að minnska kosti ein "upp" eða "út" hárgreiðsla og er árið 2010 engin undantekning. Og reyndar gott betur því í ár fengum við 4 útgáfur.
The Chignon
Dregur uppruna sinn úr frönsku: "chignon du cou" sem þýðir aftan á hálsinum. The chignon er einfaldlega smart snúður eða vafningur sem situr neðst á hnakkanum.
The Top Knot
Eins og nafnið gefur til kynna er þetta einfaldlega þéttu snúður sem situr á toppnum :)
Svo er hér önnur útfærsla af The Top Knot sem er lausari og mjög frjálsleg
Nýstálegar fléttur/vafningar
Ég minntist áður á síðu hliðarfléttuna en fléttur er mjög áberandi í tískunni þetta árið. Hér er mjög skemmtilega útgáfa sem minnir á reipi - slíkar fléttur sem og ýmiskonar snúningsútgáfur eða vafningar eru mjög skemmtilegar og ferskar.
Látum þetta gott í bili um hártískuna enda um nóg að hugsa fyrir ykkur sem eruð að spá í nýjan stíl fyrir veturinn.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.