8.9.2010 | 10:24
Handunnar töskur - Umhverfisvænar og smart
Ég mun seint skilja þær dömur sem eiga bara eina tösku eða tvær. Það er ekki nóg með það að maður þurfi ólíkar töskur fyrir ólík tilefni heldur er líka mikilvægt eiga réttu töskuna sem fullkomar "lúkkið" hverju sinni.. og ekki er verra ef þær eru "fashion statement"!
Ég uppgötvaði nýlega mjög skemmtilega netverslun sem selur mjög skemmtilegar, handunnar töskur. Töskurnar eru ekki bara flottar heldur líka umhverfisvænar. Þær eru meðal annars búnar til úr sælgætisumbúðum, gosflöskumiðum, tímaritum og ýmsu fleiru sem hefði getað endað á ruslahaugunum. Ekki nóg með það, heldur er líka gróðursett tré fyrir hverja selda tösku.
Þessar töskur eru framleiddar af fyrirtækinu Ecoist en eru fáanlegar hér á landi í gegnum netverslunina Kolors
Þess má líka geta að Samantha (Kim Cattrall) var með töskuna hér að neðan í kvikmyndinni Sex and the City 2
"The Silver Mega is very modern, the proportion is perfect, its got a very glamorous look, day glamour
- Sex and the City Stylist Danny Santiago
Hér eru svo nokkrar fleiri flottar af síðunni www.Kolors.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.