Betra útlit: nokkur góð ráð!

Heitar varirÁ ferðum mínum um vefheima rekst ég reglulega á ýmis góð ráð varðandi útlit og "viðhald fegurðar". Mér datt í hug að deila nokkrum slíkum ráðum með ykkur hér á blogginu enda duga fallegar flíkur skammt ef húðin lítur illar út og hárið er í klessu!

Hér eru nokkur góð ráð frá sérfræðingum:

- Hiti og hár

"Gættu þess að greiða alltaf úr öllum flækjum og hnútum áður en þú ferð í heita sturtu eða bað - ef þú gerir það ekki mundu kljúfa enda og skemma annars fallega hárenda. Þegar þú hefur greitt úr flækjunum ætti þú svo að skola hárið með volgu vatni til að opna hársekkina og til að losna við öll efni úr því (styling products). Síðan geturðu skellt þér í notalega sturtu/bað!"
Lisa Shepherd - haircare expert

 

- Mix dagsins

"Að nota sama lit af naglalakki á bæði fingur og tær er frekar lummó. Hugsaðu þetta frekar svona: Sæt og prúð á fingrunum en djörf og hress á tánum. Haltu þig við smart, náttúrulega liti að ofan en leiktu þér með kraftmeiri og djarfari litum að neðan. Þeim mun sterkara og djarfara - þeim mun betra."
Iris Chapple - Mavala

 

- Saltaða lausnin

"Hefurðu tekið eftir því að flekkót húð lítur mun betur út eftur sundsprett í sjónum? Það hafa því miður ekki allir aðgang að sjó eða tækifæri til að baða sig í honum og því gott að vita að það er hægt að framkvæma þetta heima. Fylltu vaskinn af sjóðandi heitu vatni og blandaðu það með vænum skammti af salti (ekki spara saltið). Rennbleyttu svo handklæði í heitu saltvatninu og leggðu það á flekkóta húðina í u.þ.b. 10 mínútur. Þetta er frábært til að gera húðina á andliti, bringu og baki fallegri og ferskari."
Stella beauty team

 

- Hið fullkomna tagl

"Til að fá háriðí hið fullkomna tagl skaltu tillgja á bakinu á rúminu þínu með höfuðið útfyrir brúnina. Taktu hárið saman á krúnunni, eða neðar ef það hentar þér. Ef þú vilt það sérstaklega smart þá skaltu úða smá vatni á burstann áður en þú notar hann. Að launum færðu mjúkt, fullkomlega lagað tagl sem jafnast á við ódýra andslitslyftingu."
Alex Box - make up artist

 

Látum þessi ráð duga í bili en fleiri ráð verða að sjálfsögðu birt hér á komandi vikum og mánuðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Emami búðin
Emami búðin

Emami búðin
Laugavegi 66
S: 511 1880
www.Emami.is

Nýjustu myndir

  • Töff par í Emami Kringlunni - Jól 2010
  • Glæsilegir skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Flowing Shirt - Glæsilegur skyrtukjóll úr hágæða áprentuðu silki
  • A Dress - nýr umbreytanlegur kjóll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband