Haust og vetrartískan 2010: Skór

Skólarnir eru að byrja, haustlaufin eru byrjuð að gulna og maður finnur hvernig morgnarnir eru svalari þrátt fyrir heiðan himinn og sól á lofti. Það er því ekki úr vegi að fara að velta því fyrir sér hvaða skó eigi að fá sér um næstu mánaðarmót þegar haustið byrjar "formlega" hjá flestum.

Það er margt mjög spennandi að gerast í haust og vetur í skótískunni en hér er það helsta:

Feldur - þ.e. loðnir skór og stígvél.

Feldinn þekkjum við nú ágætlega en hann hefur mikið verið notaður á flatbotna stígvélum og sumir djarfari hönnuðir notað hann til skrauts á ýmsar útgáfur af hælaskóm. Í vetur munum við hinsvegar sjá feldinn koma inn af fullum krafti í ýmsum útgáfum. Ef þú átt aur í buddunni þá er varla hægt að sleppa því að eignast par af Chanel eða Louboutin loðstígvélum.

Chanel 

Chanel Fur Boot

Chanel Fur

Alexander Wang Polina (Goat fur)

Polina Goat Fur Boots

Christian Louboutin (Coyote Fur)

Louboutin Coyote Fur Boots

Lanvin

Lanvin Fur Boots

 

Reimar - Reimuð stígvél

Reimar eru að koma aftur sterkar inn þannig að það ætti ekki að koma neinum á óvart að reimuð stígvél verða vinsæl í haust og vetrartískunni. Hvernig væri nú að breyta aðeins til, sýna smá hugrekki og fá sér frekar rauð stígvél í vetur heldur en eitthvað sígilt svart?

Hér eru nokkur sjóðheit og seiðandi...

Givenchy

Givenchy Red Laced Boots

Christian Dior 

Dior Laced

Hér er annar frá Dior, takið eftir því að hér eru bæði reimar og sylgja en sylgjur verða líka áberandi í vetur.

Dior lace and buckle

Fendi

Fendi Suede Boots

 

Sylgjur

Oftast skiptast nú á reimar og sylgjur á en í vetur verður hvorutveggja í gangi sem er frábært því bæði eykur það fjölbreytnina og tryggir að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Það er líka gaman sjá hvernig verið er að nota reimar og sylgjur saman samanber parið frá C. Dior hér að ofan.

Hér er nokkrir sem erfitt verður að neita sér um...

Julien Macdonald - ótrúlega smart par en verður kannski erfitt í íslenska slabbinu og snjónum (ef hann kemur þá)

Julien Macdonald buckle fall 2010

Christian Dior

Christian Dior Buckles Fall 2010

Michael Kors

Michael Kors Buckles duo

Michael Kors Buckles Fall 2010

Burberry Prorsum

Burberry Prorsum Buckles

Burberry Buckles Fall 2010

 

Hælatískan

Eins og sjá má á myndunum hér að ofan verður ýmislegt í gangi hvað hæla snertir er hér eru helstu áherslur vetrarins:

Stilettos (þessir grönnu, löngu hælar)

Stilettos eru frekar sígildir og alltaf vinsælir enda mjög sparilegir og gera mikið fyrir þær konur sem treysta sér til að ganga á þessum annars erfiðu hælum. Það eru þó nokkrur Stiletto pör á myndunum hér að ofan en hér er nokkrir jóla og áramótalegir :)

Nina Ricci

 Nina Ricci Stiletto Fall 2010

 Christian Louboutin

 Louboutin Stiletto Fall 2010

 Prada - Ekki ódýrir.. en svooo sexy!

Prada Stiletto Fall 2010

Prada Stiletto Fall 2010

Brian Atwood (áramótaskórinn í ár?)

Brian Atwood Stiletto Fall 2010

Hælatískan framhald...

Chunky heels (þessir breiðu þægilegu)

Þrátt fyrir að Stilettos séu sexy og smart þá er erfitt að ætla að ganga í þeim alla daga (eða bara heilt kvöld), því er nauðsynlegt að eiga tvö eða þrjú pör á þægilegri hælum.

Versace

Versage Suade Boot

Versace

Fendi

Fendi Leather Boots

Hælatískan framhald...

Wedges - Heilir hælar

Wedges voru gríðarlega vinsælir en eru smátt og smátt á leiðinni út aftur. Það eru þó enn nokkrir af stóru nöfnunum að eltast við þá en þeir eru ekki lengur það heitasta að mínu mati þó þeir séu enn inni. Persónulega myndi ég setja peningana mína í eitthvað sem er nýrra og meira spennandi.

 En ef þú ert ennþá mjög skotin í heilum hælum þá eru hér nokkrir góðir...

Thakoon

 Thakoon Wedge fall 2010

 Bottega Veneta

Bottega Veneta Wedges Fall 2010

 

Stígvél upp á mið læri

Há stígvél voru mjög heit á síðasta "seasoni" og verður engin breyting þar á í vetur. Ef þú vilt vera sexy og djörf þá er um að gera að skella sér sjóðheitt par af háðum leðurstígvélum.

Hér er Barbara Bui með skemmtilegt mix, há leðurstígvél á háum hæl með þykkum sóla.

Barbara Bui Fall 2010 Boots

Roberto Cavalli - alltaf djafur, alltaf smart

Roberto Cavalli Fall 2010 - animal prints

Stella  McCartney - Leyfði þessum að fljóta með, hann er frá því í sumar og svo sannarlega ekki fyrir hvern sem er.. en þær sem þora og bera hann vel munu geisla af kynþokka. (einnig fáanlegur í leðri)

Stella McCartney Thigh High Satin Boots

Það er óhætt að segja að misjaft orð fari af svona háum stígvélum og margir tengja þau við glyðruhátt þar sem þeim fylgja gjarnan mikill kynþokki. Fyrir ykkur sem ekki þorið eða viljið hreinlega ekki láta sjá ykkur í svona stígvélum býð ég aðra lausn. Það er svokallaður "leg warmer" frá Alexander Wang. Hann mun ylja ykkur á kaldari dögum og jafnframt ýta undir kynþokkann án þess að vera glyðrulegur.

Hér er Leg Warmer frá Alexander Wang

Thigh High Leg Warmer - Alexander Wang - Fall 2010

 

Háir hælar ásamt þykkum(háum) sóla

Háir hælar eru vitanlega alltaf í tísku en núna eru þykkari sólar (high platform) að koma gríðarlega sterkt inn. Þó margir séu að gera undarlega hluti með þessa tísku þá eru flestir að gera mjög flotta hluti og mikið af flottum pörum að koma.

Yves Saint Laurent

Yves Saint Laurent Fall 2010 Yves Saint Laurent Fall 2010

Nicholas Kirkwood

Nicholas Kirkwood Fall 2010

Christian Siriano

Christian Siriano Fall 2010

Givenchy

Givenchy Fall 2010

 

Litagleði/litamix

Þeir sem eru djarfir í  litavali í fatnaði ættu að fagna því sumir af djarfari hönnuðum í skógeiranum eru að færa sig upp á skaftið. Menn eru að blanda sterkari litum saman og fara óhefðbundnar leiðir í því hvað fer saman og hvað ekki.. sést sennilega einna best á þessum hér frá Balenciaga:

Balenciaga Fall 2010

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Emami búðin
Emami búðin

Emami búðin
Laugavegi 66
S: 511 1880
www.Emami.is

Nýjustu myndir

  • Töff par í Emami Kringlunni - Jól 2010
  • Glæsilegir skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Flowing Shirt - Glæsilegur skyrtukjóll úr hágæða áprentuðu silki
  • A Dress - nýr umbreytanlegur kjóll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband