Styttist í Curve gallabuxnalínu frá Levi

Levi Curve ID JeansÞað er gaman að segja frá því að Levi Strauss er í þann mund að setja á markað nýja línu af gallabuxum sem eiga að sýna mýkri og bogadregnari línur en áður hefur þekkst hjá þeim.

Það er óhætt að segja að þetta sé dálítil stefnubreyting hjá þeim enda var þessi ekki ákvörðun tekin í flýti heldur er hún niðurstaða eftir miklar markaðsrannsóknir. Hugsunin á bakvið þessa nýju Curve ID línu er að kúnni eigi að geta fundið buxur sem passa fullkomlega algjörlega óháð lögun líkamans (þ.e. lítil eða stór rass, miklar eða litlar mjaðmir og svo framvegis)

Levi fyrirtækið fór semsagt í svakalega rannsóknarvinnu á kvenlíkamanum en rannsóknin stóð yfir í 18 mánuði víðsvegar um heiminn. Þeir tóku viðtal viðtal við yfir 60.000 konur frá 13 löndum en það sem er enn merkilegra er að þeir framkvæmdu svokallað "body scan" af þeim öllum til að fá alvöru mælingar og tölfræði. Þessar body scan upplýsingar ættu að skila því að sniðin í Curve ID línunni falli betur að kvenlíkamanum en við höfum séð áður.

Þetta er sennilega í fyrsta skipti á gallabuxnamarkaðinum að framleiðandi fari í alvöru þrautagöngu og rannsóknarvinnu áður en hann framleiðir vörurnar sínar. Vonandi eru svona vinnubrögð eitthvað sem við munum sjá í auknu mæli frá stóru framleiðendunum í tískugeiranum á komandi árum.

Gallabuxurnur koma á markað í Bandaríkjunum í september og verða fáanlegar í þremur flokkum: nett kúrva, meðal kúrva og mikil kúrva. (sjá meðfylgjandi mynd)

Það verður spennandi að sjá hvort þessar buxur rati ekki í verslanir hérlendis svo fagrir bodagregnir bossar fái að njóta sín enn betur götum borgarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessar buxur eru fáanlegar i Levis smaralind og Levis kringlunni

Eva Rakel (IP-tala skráð) 30.8.2010 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Emami búðin
Emami búðin

Emami búðin
Laugavegi 66
S: 511 1880
www.Emami.is

Nýjustu myndir

  • Töff par í Emami Kringlunni - Jól 2010
  • Glæsilegir skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Skór í Emami Kringlu - Jól 2010
  • Flowing Shirt - Glæsilegur skyrtukjóll úr hágæða áprentuðu silki
  • A Dress - nýr umbreytanlegur kjóll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband